Byggjum upp menningarbæ

Í skólunum okkar fer fram listkennsla og menningaruppeldi sem breytir lífi barna okkar á hverjum degi. Kópavogsbúar eru 10% landsmanna. Þeir búa í bæ sem hefur alla burði til að verða skapandi, litskrúðugt og skemmtilegt samfélag.

Í bænum okkar starfar frábær skólahljómsveit sem fagnaði fimmtugsafmæli sínu árið 2017. Við erum með kröftugan tónlistarskóla sem rekur bestu raftónlistarbrautina fyrir unglinga á landinu. Barna- og unglingakórar úr Kópavogi hafa náð athygli langt út fyrir landsteinana og unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Menningarstofnanir bæjarins, svo sem Salurinn, Gerðarsafn og bókasafnið, auðga líf okkar og hafa alla burði til að vera einstakar í sinni röð.

 

Við hvetjum til þesss að fagmennska í listum blómstri áfram og að listafólkið fái raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið. Við þurfum að skapa skilyrði til að allir bæjarbúar geti tekið virkan þátt í menningarstarfi á eigin forsendum.

 

Framtíðarsýn okkar er að í Kópavogi verði rekin einstök starfsemi á lista- og menningarsviði sem laði til sín bæjarbúa, íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsmenn alla. Við nýtum menningarstofnanir, önnur hús og svæði um bæinn sem umgjörð utan um kraumandi menningarstarf og listflutning árið um kring. Kópavogur verði þekktur alþjóðlegur viðkomustaður í listum. Börnin okkar njóti frábærrar listkennslu á öllum skólastigum.

Við viljum:

  • Tryggja að hér þrífist og dafni öflug verk- og listkennsla í öllum skólum.

  • Hvetja til þess að fagmennska í listum blómstri og að listafólk fái tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið.

  • Sjá til þess að öllum grunnskólabörnum standi til boða leikhús- og tónleikaferðir á hverju skólaári, þeim að kostnaðarlausu.

  • Koma á fót listahátíð á aðventu ár hvert þar sem menningarstofnanir, Borgarholtið og Hamraborgin verði vettvangurinn. Menningarstofnanir hafi forystu um gerð dagskrár og fái til þess fjármagn. Hátíðin verði þróuð ár frá ári með því augnamiði að ná alþjóðlegri athygli.

  • Byggja upp Kópavogsdalinn sem nýtt menningar-, samkomu- og útivistarsvæði Kópavogs. Svæði við Dalveg verði skipulagt fyrir hönnunar- og frumkvöðlasetur, kaffihús og opið samkomusvæði. Efnt verði til hönnunarsamkeppni um skipulag dalsins og strandlengjunnar að Kársnesi sem útivistar- og þjónustusvæðis í fremstu röð.

Menningarmál

 

Þér er boðið!

Samfylkingin vill auka menningarlíf í bænum og tryggja að öllum íbúum bjóðist að taka þátt í menningarviðburðum. Við viljum að bærinn bjóði íbúum á þá viðburði sem fjármagnaðir eru af bænum þegar ljóst er að ekki er fullt hús. 

 

Menningarhús um allan bæ

Samfylkingin vill koma upp fjölnota menningarhúsum í efri byggðum bæjarins þar sem aðstaða yrði til viðburðahalds á vegum menningarhúsanna sem annarra, útibú frá Bókasafni Kópavogs og samkomustaður íbúa. 

 

Meiri menningu í skólana

Samfylkingin vill auka framboð menningarverkefna fyrir grunn- og leikskólabörn bæjarins með menningarsjóði sem skólarnir geti sótt um styrki í til að fjármagna þátttöku í menningarviðburðum að eigin vali. 


Fagleg úthlutun fjármagns

Þeim styrkjum sem Kópavogsbær úthlutar til menningarmála skal úthlutað á faglegum forsendum þar sem regla hæfilegrar fjarlægðar sé viðhöfð.